Jamm stelpan fór heim um jólin
og leið tíminn svo hratt þar að ég vill bara ekki trúa því. Ég
var komin með vinnu heima áður en ég kom heim en ég var sem sagt
með hann Atla sæta í vist ef svo má segja.
Hann er náttúrlega
bara sætasta rúsínu strákabaunin á íslandinu og hlakka ég mikið
til að fá hann og Gurrítu sys í heimsókn sem fyrst. Hann var
reyndar soldið lasinn greyið á meðan ég var að passa hann þannig
að ég gat ekki notað bommsurnar mínar sem ég fékk í jólagjöf frá
múttu og pápanum eins og ég vildi – held að helv.. skórnir séu
um þrjú kíló saman og ætla ég að kenna þeim um yfirvigtina sem
ég var með heim til íslands. En ég fékk nú samt smá snjó og
fullt af rigningu þannig að ég varð aldrei blaut í
táslurnar...... 
Svo fékk ég auðvitað að eyða
fullt af tíma með henni Ingibjörg Heklu sem er 2ja ára og neitaði
hún að fara með mömmu sinni og pabba heim þegar klukkan var orðin
eitt að nóttu á laugardagskveldi þar sem hún vildi lúlla hjá
Þórdísi. Og hver getur sagt nei við svona mikið krútt– ekkert smá
gott að hafa svona lítið kríli við hliðina á sér sem vekur mann með
æðislegum setningum
. Hún er náttúrlega líka nett dekruð af
öllum heima enda svakalega skemmtilegur persónuleiki. Fékk okkur
alla fjölskylduna til að dansa með sér á laugardagskveldi við hin
ýmsustu jólalög og ég veit ekki hversu oft ég dansaði ó hókí hókí
póki og adam átti syni sjö þetta kveld....Höfðum miklar áhyggjur af
hvað Guðmundur á móti myndi segja þegar hann sæi pabba, mömmu,
árna, mig og freydísi dansa saman í hring.... því auðvitað var
Ingibjörg Hekla svo lítil að það var ekki séns fyrir hann að sjá
hana þarna með okkur......
Fór einu sinni á djammið heima,
með Lísu beib og Ernu gellu.... og það var svakalega gaman – maður
gleymir því bara alltaf hvað það er dýrt að djamma heima
.
Fórum reyndar þegar stormurinn mikli var úti þannig að það var
ekkert mál að fá Taxa heim og engin svaka röð á hlölla....
en
jámm þetta var ansi gaman – tjuttuðum alveg hægri vinstri á
Óliver.
Jólin sjálf voru alveg yndisleg.
Gurrý, sæli og Atli liti voru hjá okkur og fékk ég alveg rosalega
mikið af flottum gjöfum – allt eitthvað sem mig vantaði og ekki
séns á neinu verði skipt. Á öðrum í jólum náðum við svo í Óla Natan
frá Danmörkinni og það var rosalega gott og gaman að hitta hann.
Var farin að sakna stráksins bara. Spiluðum allt kvöldið partý og
co sem hún amma Hanna gaf mér – hún er svo góð að velja gjafir
kellan – og átti pabbi gamli marga góða spretti í actionary! Kvaddi
svo Óla Natan en hann var að fara til Sigló til pabba síns. Eins
gott að hann hafi hagað sér vel þar strákurinn!!! 
En svo var það bara aftur
danmörkin 28. des og var mikið erfitt að kveðja
en fjölskyldan mín hérna úti fer nú stækkandi þar sem freydís og
árni már eru að flytja hingað með hana Ingibjörgu Heklu plús eitt í
malla, eftir bara 2 vikur.... þá vantar bara Gurrítu hingað og þá
værum við allar systurnar saman! 
Á gamlárskvöld var síðan mikið
gaman og mikið fjör. Við vorum tíu manns saman, grilluðum
lambakjet, brynja gerði íslenska piparsósa, og svo var fullt annað
með því – allt alveg hrikalega gott....Strákarnir voru svo duglegir
og myndarlegir að þeir voru búnir að búa til brennu sem var svona
líka svakalega flott og fín – og sátum við nokkur eftir og horfðum
á og hlýjuðum okkur... sumir fóru heim þar sem þeim var svo kalt en
það skil ég ekki þar sem að manni verður ekki kalt á brennu – bara
standa nógu nálægt við brennuna.... En allavega þar var allavega
alltaf verið að rétta mér einhvern pela sem átti ekki eftir að fara
vel í mig!!! Var ég heldur ekkert löt að segja NEI við þessum pela
þegar mér var hann réttur....!!
En jæja, svo var skálað
fyrir nýja árinu sem ég einhvern veginn missti af þar sem ég var í
símanum að tala við hönnslu systur – alltaf gott að vera í beinni
við fjölskylduna á áramótunum.
Svo voru allt í einu allir farnir
á barinn og þangað skoppaðist ég, hitti liðið og mikið gaman og
mikið fjör......en pelinn þarna fyrr um kvöldið hafði nú soldil
áhrif á líðan stelpunnar – vaknaði með bömmer á nýjársdag og ég er
enn með hann þegar ég skrifa þetta..... pjatt pjatt pjatt hvað
maður getur verið vitlaus stundum – en maður lærir svo lengi sem
maður lifir ikk? Alla vega var mitt áramótaheit sett á
nýjárskveld.... og skal ég fara eftir því – sjáum hvað setur!!

En núna ætla ég bara að hætta
þessu – þetta er orðið allt of langt – þið sem eruð enn að lesa
eigið heiður skilið....knús og klem 
Ætla að reyna vakna snemma í
fyrró og halda áfram með að læra fyrir enskuna mína, próf á
mánudaginn og svo þrjú próf eftir það – er að glósa fyrir það núna
og er komin með 34 bls nú þegar og er bara búin með helminginn,
skrifa, skrifa, skrifa....
held einmitt að það sé orkuteið sem
er að kikka inn núna og því get ég bara ekki hætt að
skrifa................. 
Elskiði friðinn, strjúkið
kviðinn, 
Þúsund þakkir fyrir skemmtileg
komment á liðnu ári, keep up the good work.....
Respect, knús og
klem Díslí